Borði
Borði

rss frá blogg

Borði
Borði
Sogiđ Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Jakob Hrafnsson   
Laugardagur, 28. Júní 2008 18:38

lax_asgardur_-_karl_logason.jpgÞað eru komnir tveir laxar á land í Ásgarði í Soginu en veiðimenn úr Veiðifélaginu Sogsmenn voru að ljúka veiðum þar.  Þeir fengu einn lax 7 pund en það var veiðimaðurinn Karl Logason sem fékk laxinn.  Tveir aðrir laxar sluppu af og var annar þeirra stór en sleit sig lausan. Þeir veiddu einnig vel af bleikju og voru þær allt að 6 pundum.

bleikjur_ur_soginu.jpgNánar er hægt að lesa sig um veiðiferðir kappana hérna hægra megin á síðunni en við vísum á fréttir þeirra jafnóðum og þær berast.

Á fyrri myndinni má sjá Karl með laxinn en hann var 7 pund og 73 cm og á þeirri seinni má sjá hversu glæsilegar bleikjurnar geta verið í Soginu.

Síðast uppfært: Laugardagur, 28. Júní 2008 18:46